Heimaþjálfun er hugtak sem ekki hefur heyrst í eyrum landsmanna áður.
Besta tækið sem þú hefur til að þjálfa heima hjá þér er þinn eigin líkami, æfingar með eigin líkamsþyngd eru þær erfiðustu sem þú getur gert og veita lang besta árangurinn skv. fremstu þjálfurum heims.
Leikmenn NBA deildarinnar nota mikið æfingar með eigin líkamsþyngd því það er jú líkaminn sem þeir þurfa að geta stjórnað sem best eigi þeir að ná arangri.

Heimaþjálfun er í rauninni þitt tækifæri til að ná þínum markmiðum innan veggja þíns heimilis.
Viltu koma þér í form án þess að fara í ræktina?
Viltu halda þér í formi?
Hafðu samband á david@heimathjalfun.is og fáðu æfingaplan sérsniðið að þínum þörfum fyrir aðeins 4.990 á mánuði!
Æfingakerfið er unnið út frá upplýsingum sem þú veitir þjálfaranum og eru þær upplýsingar trúnaðarmál og aldrei veitt þriðja aðila.
Uppbygging, fitubrennsla eða þynging, þitt er valið.
Hafðu samband, allar spurningar og fyrirspurnir vel þegnar. Eða skráðu þig núna!
Ég hef sjálfur verið í þeim sporum að vera of þungur og því tel ég mig hafa ákveðið forskot á flesta þjálfara á Íslandi með fullri virðingu fyrir kollegum mínum. Ég ákvað eftir að hafa verið of þungur í mörg ár að gera eitthvað í mínum málum og missti 40kg á innan við 2 árum. Ég ákvað það að gera þetta ekki of hratt svo þetta kæmi ekki allt aftur á mig og það virkaði líka svona vel.
Ég ákvað að fara í Íþróttaakademíuna í Keflavík til að verða einkaþjálfari. Ég lauk því námi vorið 2008 og hef þjálfað síðan þá með góðum árangri. Ég hef þjálfað íþróttafólk, of þungt fólk og fólk sem er haldið alls konar kvillum eins og t.d. fólk með brjósklos og fleira.
Að lokum vil ég vitna í mann sem ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir, íþróttakennarann minn í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Páll sagði einu sinni í tíma ógleymanlega setningu við okkur sem hefur setið í mér æ síðan: ,, það skiptir ekki máli hvað þú lærir í skóla, hversu góður þú ert í stærðfræði eða hvað það er, ef þú hugsar ekki um heilsuna muntu aldrei getað notað þetta nám þitt vegna þess að ef heilsan er léleg geturðu ekkert gert".
Kær kveðja,
Davíð Smári
IAK Einkaþjálfari
Slóð á vefsíðu Keilis, IAK Einkaþjálfaranámið


.jpg)